Skilmálar – Netheimur ehf.
Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti og samninga Netheims ehf., Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, kt. 550124-1180, vsk nr. 151559. (hér eftir „Netheimur“ eða „félagið“) Viðskiptavinir félagsins geta annars vegar verið aðilar í atvinnurekstri og hins vegar neytendur. Skilmálar þessir, ásamt eftir atvikum sérskilmálum, þjónustusamningi og samningsviðaukum fyrir hvern viðskiptavin, fela að jafnaði í sér heildarsamning aðila um viðskipti þeirra. Stangist ákvæði skilmála þessara á við ákvæði sem finna má í sérskilmálum, vöru- eða þjónustusamningi eða samningsviðaukum, skulu ákvæði þeirra síðarnefndu ganga framar þessum skilmálum. Að öðru leyti teljast frávik frá skilmálum þessum aðeins gild ef þau eru skriflega staðfest af hálfu Netheims.
Afgreiðsla pantana:
- Hægt er að sækja pantanir til okkar að Suðurlandsbraut 6
á milli kl. 12:00 og 17:00 eða fá heimsent með pósti. - Sendingarsvæði: Við sendum eingöngu innanlands á Íslandi
Hýsingarþjónusta
Með hýsingarþjónustu er átt við hýsingu félagsins á vélbúnaði, rafrænum gögnum og/eða eftir atvikum rekstur á upplýsingatæknikerfum fyrir hönd viðskiptavinar, eftir því sem nánar er skilgreint í samningi aðila. Viðskiptavinur ber ábyrgð á því að gögn og upplýsingar sem félagið hýsir fyrir viðskiptavin brjóti ekki gegn ákvæðum þessara skilmála, lögum eða réttindum þriðju aðila. Viðskiptavinur er ábyrgir fyrir brot á höfundarrétti og ólöglegu efni. Komi til slíkra brota áskilur félagið sér rétt til að grípa til aðgerða, s.s. fjarlægja eða hindra aðgang að gögnunum eða upplýsingunum.
Áskriftir og uppsögn
Hafi viðskiptavinur gert samning um mánaðarlega áskrift (t.d. hýsingu, hugbúnað eða viðhaldsþjónustu) gilda eftirfarandi reglur um uppsögn:
Greiðsluskylda: Viðskiptavinur ber ábyrgð á greiðslu allra reikninga sem falla til á uppsagnarfrestinum
Uppsagnarfrestur: Uppsagnarfrestur er einn (1) mánuður og miðast við næstu mánaðamót, nema annað sé tekið fram í sérskilmálum þjónustunnar.
Leið til uppsagnar: Uppsögn skal vera skrifleg og send á netfangið adstod@netheimur.is. Uppsögn telst gildi þegar Netheimur hefur staðfest móttöku hennar.
Greiðslur:
Allar greiðslur í vefverslun fara í gegnum örugga greiðslugátt. Netheimur geymir aldrei kortaupplýsingar viðskiptavina. Ef vara er sótt er ekki boðið upp á að staðgreiða pöntunina við afhendingu.
Skilafrestur og ábyrgð á vörum:
Hægt er að skila vörum innan 3 daga frá afhendingu gegn inneignarnótu eða skiptum í aðra vöru, svo framarlega sem varan er ónotuð og í óskemmdum, upprunalegum umbúðum.
- Endurgreiðsla: Ef greitt var með korti og fallist er á bakfærslu, er endurgreiðslan lögð inn á sama kort og notað var við kaupin.
- Tækjabúnaður: Almennar reglur um ábyrgð á tölvubúnaði gilda samkvæmt lögum um neytendakaup. Um kaup neytenda á búnaði gilda lög nr. 48/2003 um neytendakaup.
- Kaup neytenda á þjónustu gilda lög nr. 42/2000 um þjónustukaup
Takmarkanir ábyrgðar
Ábyrgð og kvörtunarréttur nær eingöngu yfir framleiðslugalla og vélbúnaðarbilanir sem verða við eðlilega notkun. Ábyrgðin nær ekki yfir:
- Slit vegna eðlilegrar notkunar.
- Tjón af völdum rangrar meðferðar, s.s. högg, rakaskemmdir eða notkun á röngum spennugjöfum.
- Hugbúnaðarvillur, tölvuvírusa eða tap á gögnum.
- Inngrip eða viðgerðir óviðkomandi aðila sem ekki hafa hlotið samþykki
Persónuvernd
Netheimur meðhöndlar allar persónuupplýsingar sem algjört trúnaðarmál. Þær eru eingöngu nýttar til að ljúka viðskiptafærslu. Viðskiptavinum býst reglulega að fá send tilboð í tölvupósti og er þá eingöngu netfang nýtt í þeim tilgangi. Samkvæmt vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018, sbr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/679
Úrlausn vafamála:
Við leggjum áherslu á að leysa öll vafamál á einfaldan og sanngjarnan hátt. Ef samkomulag næst ekki má bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Sem síðasta úrræði skal reka mál fyrir íslenskum dómstólum í lögsagnarumdæmi seljanda.
Þjónusta og upplýsingar:
Fyrir aðstoð eða frekari upplýsingar varðandi tölvubúnað og kaup er hægt að:
- Senda tölvupóst á netheimur@netheimur.is
- Hringja í síma 5506250
- Heimsækja okkur á Suðurlandsbraut 6 | 108 Reykjavík
- Vefsíður: xnet.is – verslun.netheimur.is – netheimur.is
Útgáfa skilmála númer: 1.1